Lýsing eignar
Ártún 13 er 79,7 m² sumarhús á einni hæð með 15,9 m² viðar palli og grágrænni viðarklæðningu. Afhent er fullbúið með gólfefnum, innréttingum, tækjum og helstu húsgögnum – tilbúið til notkunar frá fyrsta degi.
Nánari lýsing
- Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskáp og parketi á gólfi.
- Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum og parketi.
- Stofa: Björt og opin stofa með útgengi á pall, tengd eldhúsi í opnu rými.
- Eldhús: Hvít innrétting með quartz-borðplötu og vönduðum tækjum frá Electrolux, m.a. ísskáp, uppþvottavél, bakaraofni og helluborði með innbyggðri viftu.
- Baðherbergi: Flísalagt með walk-in sturtu, upphengdu salerni, vandaðri innréttingu og útgengi út á pall. Þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Aðstaða og búnaður
- Gólfhiti í öllum rýmum
- Gluggar og hurðir úr ál-tré
- Þak með sterkum málmplötum og þakrennum
- Lagnaleið fyrir hleðslustöð á bílastæði (stöð fylgir ekki)
- Lagnaleið fyrir heitan pott
- Steyptur sökkull og grófjafnað bílaplan
Lóðin
Lóðin er 5.610 m² að stærð og staðsett í fallegu landi í Brúarárbyggð Reykjaskógi. Hún er afhent grófjöfnuð og með aðkomu að vatni og vegum við lóðamörk.
Á svæðinu gildir nýtingarhlutfall 0,03 og heimild er til að reisa aukahús/gestahús allt að 40 m² og geymslu allt að 15 m², sem telst með í heildarbyggingarmagni lóðarinnar.
Kostnaður við lóðir
- Kauplóðir: frá 750 kr./m² auk gatnagerðargjalds og tengigjalda.
- Leigulóðir: einnig í boði með stofngjaldi og árlegri lóðarleigu.