Samvinnuverkefni AMC Hafborg og O5 fasteignafélags
Ártún 13 er 79,7 m² sumarhús á einni hæð með 15,9 m² viðar palli og svartri viðarklæðningu. Afhent er fullbúið með gólfefnum, innréttingum, tækjum og helstu húsgögnum – tilbúið til notkunar frá fyrsta degi.
Lóðin er 5.610 m² að stærð og staðsett í fallegu landi í Brúarárbyggð Reykjaskógi. Hún er afhent grófjöfnuð og með aðkomu að vatni og vegum við lóðamörk.
Á svæðinu gildir nýtingarhlutfall 0,03 og heimild er til að reisa aukahús/gestahús allt að 40 m² og geymslu allt að 15 m², sem telst með í heildarbyggingarmagni lóðarinnar.